Vox feminae ásamt Stúlknakór Reykjavíkur og Kammerkór Aurora tóku þátt á Listahátíð með Sinfóníuhljómveit Íslands. Tónleikarnir fóru fram í Eldborg, Hörpu þann 6. júní s.l.
Á efnisskránni var Gustav Mahler, Sinfónía nr. 3 í d moll. Hljómsveitarstjóri var hin finnska Eva Ollikainen og einsöngvari var Christina Bock. Tónleikarnir voru teknir upp af Rás 1 og verða sendir út síðar.