Vox feminae og Fóstbræður munu sameina krafta sína með tónleikum á mörkum vors og sumars þann 31.maí næstkomandi í Langholtskirkju. Á dagskrá verður fjölbreytt tónlist eftir núlifandi tónskáld frá ýmsum löndum, þar á meðal Arvo Pärt, Ola Gjeilo og Karl Jenkins. Kórarnir munu gleðja gesti með sjálfstæðum söng og samsöng sem einn kór.

Um er að ræða tvenna tónleika, kl.17 & kl.20.
Miðar eru væntanlegir í sölu hjá kórfélögum og á TIX.