Vegna útfarar Flosa Ólafssonar frá Reykholtskirkju laugardaginn 31. október falla niður tónleikar okkar sem fyrirhugaðir voru í kirkjunni.
Kórinn mun hins vegar flytja hluta efnisskrár tónleikanna við og eftir allra heilagra messu í Reykholtskirkju sunnudaginn 1. nóvember kl. 14, en á efnisskránni eru trúarleg verk eftir íslensk tónskáld.