Á kvenréttindadaginn þann 19. júní kemur út ljósmyndabókin „da capo‟. Meginstef hennar eru portrettmyndir af kórkonum í Vox feminae ásamt minningabrotum úr kórstarfinu og hugleiðingar kórfélaga um hlutverk söngsins í lífi þeirra. Að auki hefur bókin að geyma sögu Vox feminae í máli og myndum, erindi um sögu kvennasöngs á Íslandi og erindi frá listamönnum um samstarfið við Vox feminae. Formála ritar Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands.

Vox feminae heldur tónleika í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu á útgáfudaginn  kl. 15. Stjórnandi er Margrét J. Pálmadóttir Á sama tíma verður opnuð sýning í Þjóðmenningarhúsinu þar sem bókin verður til sýnis ásamt ágripi af sögu kórsins.
Aðgangur er ókeypis meðan húsrúm leyfir.

Bókinni er ætlað að veita innsýn í starf kvennakórs á Íslandi og þeirra kvenna sem hann skapa. Portrettmyndirnar af kórfélögum Vox feminae tók Sigríður Soffía Gunnarsdóttir á fimmtán ára afmæli kórsins
Samfelld saga kvennakóra á Íslandi er ekki löng og ritnefnd þótti því mikilvægt að varpa ljósi á líf og starf kvennakórs í samtímanum, ekki síst með tilliti til hinnar miklu uppbyggingar sem hefur átt sér stað síðustu áratugina í kvennakórastarfi á Íslandi. Í bókinni er ágrip af sögu kórsins og skrá yfir tónleika og myndir úr viðburðum í lífi hans auk skrár yfir alla félaga í Vox  feminae og þá listamenn sem hafa starfað með kórnum frá stofnun hans. Auk þess eru í bókinni erindi um sögu kvennasöngs á Íslandi og erindi um samstarf einsöngvara og raddþjálfara, píanóleikara, búningahönnuðar, gestastjórnanda og tónskálda við Vox feminae. Bókin er 200 blaðsíður, innbundin og ríkulega myndskreytt.  Bókinni fylgir geisladiskur sem hefur að geyma tvö lög af hverjum þeirra þriggja geisladiska sem kórinn hefur gefið út.