“Hátíð er ný” er yfirskrift tíundu aðventutónleika kóra Margrétar J. Pálmadóttur sem haldnir verða í Hallgrímskirkju miðvikudaginn 9. desember kl. 20 og föstudaginn 11. desember kl. 20.

 

Á tónleikunum koma fram 180 söngkonur á öllum aldri úr Stúlknakór Reykjavíkur, kvennakórunum Cantabile og Vox feminae. Fluttar verða margar af okkar fallegustu aðventu- og jólaperlum.

 

Stjórnandi tónleikanna er Margrét J. Pálmadóttir og einsöngvari með kórnum er Hanna Björk Guðjónsdóttir sópran. Eydís Franzdóttir leikur á óbó, Sigurður Halldórsson á selló og Antonia Hevesi á orgel.

 

Miðaverð er 3.500 krónur í forsölu og 4.500 krónur við innganginn. Forsala aðgöngumiða er hjá kórfélögum og í Domus Vox Laugavegi 116, mánudaga til fimmtudaga kl. 14-18, sími 511 3737 og 893 8060.