Í skammdeginu, þegar birtan dvínar og kyrrð færist yfir, býður kvennakórinn Vox feminae til Kyrrðarstundar við kertaljós í tilefni allra heilagra messu fimmtudaginn 5. nóv. kl. 20 í Kristskirkju við Landakot.
Kyrrðarstundin er helguð minningu og kærleika. Umvafin kertaljósi og fallegri tónlist getum við staldrað við um stund og hugsað til þeirra sem eru okkur kærir.
Á efnisskránni eru trúarleg verk og vögguljóð sem hafa fylgt kórnum í gegnum tíðina og eiga vel við á þessari stundu.
Auk Vox feminae flytur Gerður Kristný rithöfundur hugvekju og Ástrós Eva Einarsdóttir leikur á selló. Stjórnandi er Stefan Sand.
Miðaverð er kr. 3500. Hægt er að kaupa miða hjá kórfélögum og á tix.is.
https://tix.is/event/22529/kyrrrdarstund-vid-kertaljos


