Vox feminae og strengjasveit Sinfóníuhljómsveitar áhugamanna sameina krafta sína á tónleikum í Seltjarnarneskirkju laugardaginn 23. maí kl. 16.00.

Tónleikarnir bera yfirskriftina Óður til alheimsins og á efnisskránni eru fjögur verk eftir Ola Gjeilo, John Rutter og Gustav Holst. Um er að ræða frumflutning á Íslandi á tveimur þessara verka. Tónverk þessi eru fremur sjaldan flutt, enda óvenjulegt að semja sérstaklega fyrir strengjasveit og kvenraddir.

Efnisskrá:

  • Ola Gjeilo: Tundra
  • John Rutter: Visions – frumflutningur á Íslandi
  • Gustav Holst: Seven Part-Songs – frumflutningur á Íslandi
  • Ola Gjeilo: Song of the Universal

Stjórnandi tónleikanna er Stefan Sand. Einnig koma fram:

  • Anna Keil, söngkona
  • Arnhildur Valgarðsdóttir, píanóleikari
  • Martin Frewer, fiðluleikari

Miðaverð er 4.900 kr. og miðar eru fáanlegir á www.tix.is.