Kvennakórinn Vox feminae er einn þeirra kóra sem tekur þátt í Landsmóti íslenskra kvennakóra á Ísafirði dagana 11. – 13. maí nk. Af því tilefni heldur kórinn sérstaka tónleika í Ísafjarðarkirkju sunnudaginn 14. maí kl. 13:30. Tónleikarnir bera yfirskriftina Meyjar mögur sem sótt er í elsta varðveitta sálm Norðurlanda, Heyr, himna smiður, eftir Kolbein Tumason en sálmurinn verður fluttur á tónleikunum við lag Þorkels Sigurbjörnssonar. 

Á tónleikunum í Ísafjarðarkirkju verða flutt trúarleg verk eftir íslensk samtímatónskáld s.s. Hildigunni Rúnarsdóttur, Báru Grímsdóttur og Tryggva M. Baldvinsson auk þess sem flutt verða verk eftir Ísfirðingana Jón Ásgeirsson og Hjálmar H. Ragnars. Þá verða einnig flutt erlend trúarleg verk, meðal annars verk eftir miðaldatónskáldin Orlande de Lassus og Tomás Luis de Victoria.
Öll verkin verða flutt án undirleiks. 

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir eru hjartanlega velkomnir.