Miðvikudaginn 13. nóvember heldur Vox feminae kveðjutónleika í Grensáskirkju, en kórinn heldur af stað í tónleikaferð til Parísar þann 21. nóvember næstkomandi.  Á tónleikunum gefst áhorfendum kostur á að hlýða á margt það sem að Vox feminae hyggst flytja fyrir Parísarbúa.  Einsöngvari á tónleikunum er Sigrún Hjálmtýsdóttir og píanóleikari eru Guðný Einarsdóttir.  Stjórnandi er Margrét J. Pálmadóttir.

Tónleikarnir hefjast kl. 20:30 og er miðaverð 2.000 krónur. Miðasala er hjá kórfélögum og við innganginn.