Vox feminae veitist sá heiður að taka þátt í Jólatónleikum Kristjáns Jóhannssonar í Hörpu sunnudaginn 8. desember. 

Um glæsilega jólatónleika er að ræða en ásamt Kristjáni munu stíga á svið Dísella Lárusdóttir, Kristinn Sigmundsson og Þóra Einarsdóttir ásamt kvenna- og stúlknakór undir stjórn Margrétar J. Pálmadóttur. Þá mun 30-40 manna sinfóníuhljómsveit leika með undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar. Konsertmeistari verður Sigrún Eðvaldsdóttir. Þetta verða léttklassískir og hátíðlegir jólatónleikar með fjölda þekktra jólalaga. Dagskráin leggur upp með að færa áhorfendum fagra hljóma, gleði og hátíðarstemmingu.