“Yfir fannhvíta jörð” er yfirskrift glæsilegra aðventutónleika allra kóra sönghússins Domus Vox í Hallgrímskirkju þann 9. desember næstkomandi. Haldnir verða tvennir tónleikar, kl. 18 og kl. 20:30, en uppselt er á seinni tónleikana. Stjórnandi er Margrét J. Pálmadóttir.

Á tónleikunum flytja 200 söngkonur á öllum aldri margar af okkar fallegustu aðventu- og jólaperlum. Kórarnir sem fram koma eru Stúlknakór Reykjavíkur og kvennakórarnir Cantabile og Vox feminae. Einsöngvari er Maríus Sverrisson, Antonia Hevesi leikur á orgel, Örnólfur Kristjánsson á selló, Helga S. Torfadóttir og Hlín Erlendsdóttir leika á fiðlu, og Eydís Franzsdóttir leikur á óbó.

Miðasala er hjá kórfélögum og hjá Domus Vox í síma 511 3737.